ÞAÐ BÝR KRAFTUR Í ÆSKUNNI
Samstarfsráð um forvarnir og IOGT boðuðu til málþings 14. mars sl. helgað Árna Helgasyni um ungt fólk sem virka þátttakendur í samfélaginu og í nýsköpun á sviði samfélagsmála, atvinnumála og umhverfis.
Málþingið eða Árnamessa var í grunnskóla Stykkishólms en um 50 þátttakendur mættu á málþingið að þessu sinni. Auk þess voru 110 ungir skákmenn skráðir til leiks í skákmóti Árnamessu sem haldið var á sama tíma í grunnskólanum í Stykkishólmi.
Árnamessustjóri var Halldór Árnason
Fundarstjóri var Róbert Jörgensen
Þessir fluttu erindi á Árnamessu 2010:
Setning málþings - forvarnir fyrri tíma
Árni Einarsson, framkvæmdastjóri Fræðslu og forvarna (FRÆ)
Skapandi hugsun ungs fólks og þátttaka þeirra í nýsköpun
Guðjón Már Guðjónsson frá Hugmyndaráðuneytinu
Virkni ungs fólks í skipulagningu bæjarhátíða
Gunnar Svanlaugsson, skólastjóri grunnskólans í Stykkishólmi
Þeir sem landið erfa – athafnaþrá ungs fólks
Sigríður Margrét Guðmundsdóttir, framkvæmdastj. Landnámsseturs
Það býr kraftur í æskunni
Diljá Helgadóttir, grunnskólanemi
Ingibjörg Jóna Halldórsdóttir lék á píanó á eftir framsöguerindum
Umræðuefni í hópum:
a) Ungt fólk og nýsköpun
b) Ungt fólk og verkefni í heimabyggð
c) Ungt fólk og athafnaþrá
d) Unga fólkið – það erum við
Panelumræður – Það býr kraftur í æskunni
Fulltrúi ungs fólks frá hverjum umræðuhópi voru í pallborði.














