FRÆÐSLA OG FORVARNIR

      

    KÖNNUN

    Ég styð það að fíkniefnaleit með hundum fari fram í framhaldsskólum af og til í forvarnaskyni
    Mjög svo
    Talsvert
    Veit ekki
    Lítið
    Mjög lítið


    ahrifhausnet1.jpg

    handbokin.jpg

    framhskol.jpg

    vika43logo11

    bida_bordi2.jpg

    ÉG ÆTLA AÐ BÍÐA...

    augl.jpg

     

    FORVARNABÓKIN  

     
      
     
    UPPHAFIÐ
    FRÆ gaf nýlega út bókina Fíkniefni og forvarnir - handbók fyrir heimili og skóla. Ritið er sniðið að þörfum skóla og fræðslustofnana, foreldra og heimila og gagnasafna (bókasafna) af ýmsu tagi. Í ritinu er fjallað um uppruna, sögu og gerð algengustu fíkniefna; Áhrif neyslu efnanna, m.a. á líffæri, sálarlíf og samfélag. Einkennum misnotkunar er lýst og upplýsingar um hvert hægt er að leita þegar vanda ber að höndum. Fjallað er um tóbak og reykingar í sérstökum kafla. Einnig er fjallað um viðbrögð þjóðfélagsins til þess að bregðast við vanda vegna efnanna; Forvarnir, íhlutun og meðferð eru skýrð. 
    Þróun mála á Íslandi er rakin og gerð grein fyrir starfi fjölmargra sem vinna að forvörnum, s.s. lögreglu, tollgæslu, skóla, heilsugæslu og félagsmálastofnana. Gerð grein fyrir hvernig forvörnum er sinnt í æskulýðsstarfi og uppeldi.
     
    Bókin er 320 síður, myndskreytt í stóru broti. Myndir eru eftir Önnu Gunnlaugsdóttur, myndlistarkonu. 30 íslenskir sérfræðingar í ávana- og fíkniefnamál skrifa efni bókarinnar og heimildaskráin telur um 320 heimildir. Bókin var prentuð í Odda.
    Ritnefnd: Árni Einarsson, Aldís Yngvadóttir, Guðni R Björnsson, dr. Hafrún Friðriksdóttir, dr. Þorsteinn Njálsson og Ólafur Steingrímsson.