FRÆÐSLA OG FORVARNIR

      

    KÖNNUN

    Ég styð það að fíkniefnaleit með hundum fari fram í framhaldsskólum af og til í forvarnaskyni
    Mjög svo
    Talsvert
    Veit ekki
    Lítið
    Mjög lítið


    ahrifhausnet1.jpg

    handbokin.jpg

    framhskol.jpg

    vika43logo11

    bida_bordi2.jpg

    ÉG ÆTLA AÐ BÍÐA...

    augl.jpg

    Áfengis- og fíkniefnamál

     - alþjóðlegt (fjölþjóðlegt) viðfangsefni

    Alþjóðavæðing, aukin samskipti og frjáls verslun hafa gert það að verkum að áfengis- og fíkniefnamál hverrar þjóðar eru ekki lengur hennar einkamál í sama mæli og áður. Alþjóðlegir samningar takmarka svigrúm stjórnvalda til sjálfstæðrar lagasetningar og aukin og tíðari ferðalög fólks á milli landa hefur áhrif á verðlagningu á áfengi og tóbaki og gerir eftirlit með smygli umfangsmeira, svo eitthvað sé nefnt. Þátttaka Íslendinga í Evrópska efnahgssvæðinu (EES) takmarkar t.d. svigrúm stjórnvalda til einkasölu á áfengi, reglur Evrópusambandsins torvelda bann við áfengisauglýsingum og einokun ríkisins á innflutningi á áfengi er ekki lengur heimil.

    Það sem hér er nefnt snýr að framboði á þessum efnum en alþjóðasamvinna er einnig um margt sem snýr að eftirspurninni og tilraunum til þess að koma í veg fyrir eða draga úr því tjóni sem neyslu áfengis og annarra fíkniefna veldur. Alþjóðastofnanir starfa saman á grundvelli sameiginlegrar stefnu og samþykkta og ýmis samtök á þessu sviði hafa með sér samstarf, bæði formlegt og óformlegt.

    Á þessari síðu er gerð grein fyrir nokkrum norrænum og fjölþjóðlegum stofnunum sem íslensk stjórnvöld eiga aðilda að og starfa með og norrænu og alþjóðlegu samstarfi félagasamtaka í forvörnum og áfengis- og fíkniefnamálum.