FRÆÐSLA OG FORVARNIR

      

    KÖNNUN

    Ég styð það að fíkniefnaleit með hundum fari fram í framhaldsskólum af og til í forvarnaskyni
    Mjög svo
    Talsvert
    Veit ekki
    Lítið
    Mjög lítið


    ahrifhausnet1.jpg

    handbokin.jpg

    framhskol.jpg

    vika43logo11

    bida_bordi2.jpg

    ÉG ÆTLA AÐ BÍÐA...

    augl.jpg
    08.02.2012
    Danir ráðast gegn reykingum
    reykingardanm12

    Danska ríkisstjórnin hefur sagt tóbaksreykingum barna og unglinga stríð á hendur. Meðal annars stendur til að hækka bann við reykingum úr 16 árum í 18.

    Meira
    30.01.2012
    Líklegt að fíkniefni séu framleidd á Íslandi til útflutnings
    island12

    Í nýrri skýrslu frá ríkislögreglustjóra er talið líklegt að fíkniefni séu framleidd hér á landi til útflutnings. Vísbendingar um umfang framleiðslunnar bendi til þess að hún sé ekki öll til heimabrúks.

    Meira
    26.01.2012
    FIFA þvingar ríkisstjórn Brasilíu til að breyta lögum
    FIFA14

    Fifa, alþjóðlegu knattspyrnusamtökin, fara fram á að áfengi verði selt á öllum knattspyrnuvöllum í Brasilíu í heimsmeistarkeppninni (World Cup) 2014, stjórn Fifa vill fá einkarétt á sölu bjórs á öllum leikjum keppninnar. 

    Meira
    19.01.2012
    Styttri opnunartími vínveitingahúsa dregur úr ofbeldi
    barir12

    Norska lögreglan er sannfærð um að stytting opnunartíma vínveitingahúsa sé helsta skýringin á því að ofbeldisglæpum hefur fækkað um 45% frá árinu 2007 í Þrándheimi.

    Meira
    13.01.2012
    200 000 börn deyja úr reykingum - á hverju ári
    rettukrossinn

    Meira en 600.000 manns, þriðjungur þeirra eru börn, deyja á hverju ári of snemma vegna óbeinna reykinga. Þetta sýnir fyrsta alheimsrannsókn á áhrifum óbeinna reykinga.

    Meira
    12.01.2012
    Líklegt að ræktun kannabis og framleiðsla örvandi efna færist í vöxt í dreifbýli
    kannabispant12

    Í nýrri skýrslu frá ríkislögreglustjóra er talið að líkur séu á að ræktun á kannabis og framleiðsla örvandi efna færist í vöxt í dreifbýli þar sem erfiðara er að koma við eftirliti. 

    Meira
    10.01.2012
    Meirihluti Dana vill hækka áfengiskaupaaldur
    danskol

    Meirihluti Dana vill hækka áfengiskaupaaldur í átján ár, ef marka má nýja skoðanakönnun. Unglingar mega nú kaupa áfengi í verslunum frá sextán ára aldri. 


    Meira
    09.01.2012
    Rúm 80% fullorðinna Íslendinga reykja ekki
    tobaksbakk12

    Nýjar tölur yfir umfang reykinga á Íslandi fyrir árið 2011 sýna að tíðni daglegra reykinga fullorðinna (15–89 ára) helst nokkuð óbreytt frá árinu áður, en verulega hefur dregið úr tíðni daglegra reykinga undanfarin ár.

    Meira
    06.01.2012
    Áfengissala dregst saman
    EUROflöskur

    Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins segir að sala áfengis í desember síðastliðnum hafi verið 2,6% minni en sama mánuð í fyrra. 

    Meira
    03.01.2012
    Langflest afbrot hér á landi tengd áfengi og fíkniefnum
    Fikniefni12

    Fjórðungur allra fanga á landinu situr inni vegna fíkniefnabrota. Árið 1990 var hlutfallið sjö prósent. Fíkniefnabrot eru flokkuð sem slík þegar alvarlegasta brot sem viðkomandi hefur framið er tengt fíkniefnalöggjöfinni.
     

    Meira
    28.12.2011
    Vill lög um lágmarksverð á áfengi
    cameron11

    David Cameron, forsætisráðherra Breta, ætlar að leggja fram frumvarp sem felur í sér að sett verði lágmarksverð á áfengi. Með þessu vill Cameron stuðla að takmarkaðra aðgengi að áfengi og bættri heilsu.

    Meira
    21.12.2011
    Yfirlýsing Viku 43 afhend ráðherra
    vika43velfrherra

    Nýlega tók velferðarráðherra Guðbjartur Hannesson við innrömmuðu eintaki af „yfirlýsingu Viku 43“ sem var undirritað í október sl. af fulltrúum 20 félagasamtaka ásamt velferðarráðherra og umboðsmanni barna.  

    Meira
    18.12.2011
    ÁHRIF - grein um félagasamtök í forvörnum
    ahrif11amynd

    ÁHRIF, tímarit af vettvangi vímuvarna, er eina tímarit sinnar tegundar á Íslandi og er dreift til fjölmargra aðila, stofnana, skóla og bókasafna en blaðið má einnig nálgast hjá útgefanda og í pdf útgáfu á heimasíðu FRÆ www.forvarnir.is

    Meira
    15.12.2011
    Hvít jól - forvarnaverkefni IOGT
    hvitjol11

    Hvít jól er forvarnarátak sem beinir kastljósinu að áfengisneyslu fullorðinna yfir jólahátíðina. Átakið er verkefni IOGT hreyfingarinnar í Svíþjóð og Finnlandi en Hvít jól hefur verið kynnt í nokkur ár í Svíþjóð sem þaðan breiddist út til annarra landa, s.s. Noregs, Færeyja, Íslands og Slóvakíu.

    Meira
    12.12.2011
    Ráðgjafarskóli Íslands útskrifar 26 nemendur
    FSRSutskdes11

    Ráðgjafaskóli Íslands og Forvarnaskólinn útskrifuðu 10. desember sl. 26 nemendur við hátíðlega athöfn sem fram fór í húsnæði Háskóla Íslands. Af 26 nemendum skólanna sem stunduðu þar nám í vetur voru 18 þeirra í ráðgjafanámi og 8 nemendur í forvarnanámi.  

    Meira
    25.11.2011
    Fundur um jólakvíða
    Jólakvíði1

    EA samtökin bjóða upp á sinn árlega fund um jólakvíða, fimmtudaginn 8. desember nk. kl. 18.00 í kórkjallara Hallgrímskirkju.  Það er því miður vaxandi hópur fólks sem er að berjast við mikinn kvíða og streitu þessa dagana, t.d. vegna ástvinamissis, hjónaskilnaðar

    Meira
    23.11.2011
    Mikill meirihluti á móti lögleiðingu kannabisefna
    Kannabismynd

    Rösklega 87% Íslendinga eru frekar eða mjög andvíg því að neysla kannabisefna verði gerð lögleg á Íslandi. Um 12,7% eru frekar eða mjög fylgjandi. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR, en samkvæmt henni fjölgar þeim sem eru andvígir lögleiðingu á neyslu kannabisefna á Íslandi frá fyrri könnun. 

    Meira
    13.11.2011
    Náum áttum fundur: streita og kvíði barna
    N8nov11s

    Síðasti morgunverðarfundur Náum áttum fræðsluhópsins verður á Grand hótel 23. nóvember nk.  Að þessu sinni verða flutt erindi um streitu og kvíða barna, einkenni og úrræði.  Lárus H. Blöndal, sálfræðingur, SÁÁ, Von kallar erindi sitt „... en pabbi er ekki róni !“   og talar einnig um börn alkóhólista og kynning á sálfræðiþjónusta SÁÁ fyrir börn alkóhólista.  

    Meira
    10.11.2011
    Yfir 10 þúsund séð sýninguna HVAÐ EF? í Þjóðleikhúsinu
    Hvaðef_mynd

    Aðstandendur forvarnaleikritsins HVAÐ EF bjóða til stórsýningar á verkinu á stóra sviði Þjóðleikhússins þann 15 nóv. kl. 19.30 í tilefni þess að nú þegar hafa yfir 10.000 unglingar,foreldra og kennarar séð sýninguna frá frumsýningu í október 2010, í Kassanum í Þjóðleikhúsinu. Verkið tekur um 60 minútur í flutningi en einnig verða ýmsar kynningar í anddyri sem og stuttar ræður svo að dagskránni líkur um kl. 21.15.

    Meira
    07.11.2011
    Hættulegt hass
    kannabisplant

    Ný tegund af stórhættulegu verksmiðjuhassi er nú í sölu á Norðurlöndum. Níu ungmenni hafa látist í Svíþjóð af völdum þessa nýja eiturlyfs sem er lífshættulega sterkt. Norska lögreglan hefur gefið út viðvörun vegna þessa.

    Hassið er framleitt með rannsóknarstofuaðferðum og er 100 sinnum stektara en venjulegt hass. Ekki er vitað til að efnið sé komið í umferð hér á landi.
    Meira
    29.10.2011
    Yfirlýsingu Viku 43 undirrituð af velferðarráðherra
    GudbjarturH2011

    Í tilefni af Viku 43, Vímuvarnaviku 2011 undirrituðu fulltrúar tuttugu félagasamtaka, umboðsmaður barna og Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra yfirlýsingu þar sem hvatt er til þess að réttur barna til lífs án neikvæðra afleiðinga áfengis- og vímuefnaneyslu sé virtur. Undirritunin fór fram í húsakynnum KFUM-K við Holtaveg í Reykjavík.

    Meira
    27.10.2011
    Setja þarf framleiðendum og seljendum áfengis reglur og móta langtíma stefnu og aðgerðaaáætlun í áfengismálum
    nordan_salur11

    NordAN (Nordic Alcohol and Drug Policy Network), sem er samstarfsvettvangur tæplega níutíu félagasamtaka á Norðurlöndum og Eystrasaltslöndunum þremur, samþykkti á aðalfundi sínum sem haldinn var í Vilnius í Litháen 22. október síðastliðinn ályktanir þar sem minnt er á að áfengi sé engin venjuleg neysluvara. Neysla þess tengist sterklega alvarlegum vandamálum sem snúi bæði að einstaklingum og samfélögum.

    Meira
    25.10.2011
    Undirritun yfirlýsingar Viku 43
    Vika432011a

    Undirritun yfirlýsingar Viku 43 fer fram í sal KFUM við Holtaveg föstudaginn 28. október nk. kl. 15.00.  Þangað er fulltrúum félagasamtaka í verkefninu Vika 43 boðið að koma og undirrita yfirlýsingu Viku 43 en að auki munu skrifa nafn sitt á hana við þetta tækifæri velferðarráðherra, Guðbjartur Hannesson og umboðsmaður barna, Margrét María Sigurðardóttir.

    Meira
    13.10.2011
    Heilsu- og forvarnavika í Reykjanesbæ
    Reykjanesvika11

    Vikuna 3. – 9. október var haldin í fjórða sinn sameiginlega Heilsu- og forvarnavika í Reykjanesbæ. Allar stofnanir Reykjanesbæjar auk fjölmargra fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka tóku þátt í verkefninu.  Segja má að Geðræktarganga Bjargarinnar hafi lagt tóninn fyrir heilsu -og forvarnavikuna með heilsuræktargöngunni og geðorðunum 10 í upphaf vikunnar. Áhersla var lögð á hollan og góðan mat venju fremur og sáu Skólamatur og Menu-veitingar um að laða fram lokkandi heilsurétti. 

    Meira
    05.10.2011
    Til að forvarnir virki!
    12okt11

    Næsti morgunverðarfundur Náum áttum „Til að forvarnir virki!“, verður haldinn á Grand hótel miðvikudaginn 12. október nk.  Framsöguerindi flytja þau Árni Einarsson, framkvæmdastjóri FRÆ sem fjallar um skiplag forvarnastarfs og forsendur þess að þær skili árangri, Sveinbjörn Kristjánsson, verkefnastjóri hjá embætti landlæknis sem fjallar um forvarnaverkefni, hvað virkar og hvað ekki og Elín Lóa Baldursdóttir, verkefnastýra Jafningjafræðslunnar sem fjallar um markmið og verkefni Jafningjafræðslunnar um þessar mundir.

    Meira
    30.09.2011
    Forvarnardagurinn 2011
    taktutatt11

    Forvarnardagur forseta Íslands verður haldinn miðvikudaginn 5. október. Dagurinn er helgaður nokkrum heillaráðum sem geta forðað börnum og unglingum frá fíkniefnum, ráðum sem eiga erindi við allar fjölskyldur í landinu. Verkefnið hefur beinst að nemendum 9. bekkja grunnskóla undanfarin ár en að þessu sinni heimsækja fulltrúar verkefnisins einni nemendur á fyrsta ári í framhaldsskóla.

    Meira
    21.09.2011
    Frístundir, áhætta, forvarnir
    naumattumsmal

    Morgunverðarfundur Náum áttum „Frístundir, áhætta, forvarnir“, verður haldinn á Grand hótel miðvikudaginn 28. september nk.  Framsöguerindi flytja þau Jóhanna Rósa Arnardóttir, félags- og menntunarfræðingur, Árni Guðmundsson MEd, Eygló Rúnarsdóttir, verkefnastjóri á Skóla- og frístundasviði Reykjavíkur og Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi UMFÍ.

    Meira
    20.09.2011
    „Sameiginleg ábyrgð okkar er að vernda ófædd börn fyrir áfengi“
    Ófrísk_kona

    Nýlega hittust ráðherrar Evrópusambandsins og ræddu m.a. um leiðir til að vernda ófædd börn fyrir skaðlegum áhrifum áfengisneyslu.  Adam Fronczak, framkvæmdastjóri heilbrigðisráðuneytis Póllands, sagði engan vafa á því að áfengisneysla á meðgöngu gæti valdið heilsutengdum skaða á ófædd börn (Foetal Alcohol Spectrum Disorders FASD), jafnvel lítið magn af áfengi getur skaðað fóstur.  Börn  með FASD bera líkamlegan skaða auk þess að eiga við hegðunar- og námsörðugleika að stríða alla ævi og  þeim er mun hættara að lenda utan skólakerfis og í afbrotum. Með einföldum hætti má koma 100% í veg fyrir þennan skaða.

    Meira
    16.08.2011
    Ungt fólk sækir upplýsingar um fíkniefni fyrst og fremst á netið
    Eurobarometer11

    Í könnun sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (European Commission)1) stendur að og kallast Youth attitudes on drugs2) um viðhorf ungs fólks til fíkniefna og kynnt var 11. júlí síðastliðinn kemur í ljós að 64% ungs fólks sækir upplýsingar sínar um fíkniefni fyrst og fremst á netið, 37% frá vinum og 28% frá fjölskyldumeðlimum. Þegar spurt var hvaðan upplýsingar sem þau hefðu fengið á síðast liðnu ári hefðu komið sögðu 39% þær komnar af netinu, 61% úr fjölmiðlakynningum og 41% í skólum. Könnunin leiddi samt í ljós að þáttur netsins sem helsta uppspretta ungs fólks um fíkniefni hefur aukist frá árinu 2008. 

    Meira
    08.08.2011
    Námskeiðsvika dr. Powells
    Powell2011

    Dr. David J. Powell, bandarískur sálfræðingur og fyrirlesari, heldur námskeið á Íslandi 5. - 9. september nk.  Dr. Powell er heimsþekktur fyrirlesari og kennari á sínu sviði en hann er m.a. höfundur bókanna „Clinical Supervision in Alcohol and Drug Abuse Counseling“ og „Playing life’s second half: A man’s guide for turning success into significance.“

    Meira
    22.07.2011
    Allsgáð erum við með allt á hreinu!
    FRÆverslofrett

    Nú þegar stærsta ferðahelgi sumarsins er framundan þarf að huga að ýmsu varðandi velferð og ábyrgð foreldra barna og unglinga.  Margar rannsóknir hafa ma. sýnt að sumarið á milli grunnskóla og framhaldsskóla byrja margir unglingar að neyta fíkniefna í fyrsta sinn, oft með slæmum afleiðingum.

    Meira
    17.07.2011
    Hvað stendur ekki á vínflösku?
    EUROflöskur

    Núna í júlí var lögð fram tillaga í Evrópuþinginu um merkingar matvæla en þar eru áfengir drykkir undanþegnir innihaldsmerkingum.  Löggjöfin tekur gildi í haust en aðildarþjóðir hafa 3-5 ár til að koma lögunum í framkvæmd. Þrátt fyrir þessa niðurstöðu er gert ráð fyrir að framkvæmdanefndin leggi á næstu árum fram nákvæmari tillögur um nána merkingu áfengra drykkja sem innihalda meira en 1.2% alkóhól.

    Meira
    04.07.2011
    Úthlutað úr Forvarnasjóði 2011
    Gudbjartur

    Velferðarráðherra úthlutaði nýlega styrkjum úr Forvarnasjóði, samtals 72 milljónum króna, til fjölbreyttra verkefna og rannsókna á sviði forvarna gegn áfengis- og vímuefnaneyslu og bættrar lýðheilsu. Þetta er í síðasta sinn sem styrkjum er úthlutað úr sjóðnum. 

    Alls voru veittir styrkir til 102 verkefna en umsækjendur voru tæplega 170. Hæstu styrkina hlutu Fræðsla og forvarnir, 5 milljónir króna
    Meira
    26.06.2011
    Alþjóðadagur gegn fíkniefnum
    thokkumgodarvidtokurskjal.gif

    Í dag, 26. júní, er alþjóðadagur Sameinuðu þjóðanna gegn fíkniefnum en verkefnið Bara gras? var fyrst kynnt til sögunnar þennan dag fyrir ári síðan. Fræðsluverkefnið Bara gras? hefur fengið mjög góðar viðtökur, sett voru upp 14 málþing í vor eins og til stóð og á annað þúsund foreldrar hafa sótt þessi fræðsluþing. 

    Meira
    16.06.2011
    Slysum vegna ölvunaraksturs fækkar
    Umferðbila

    Í slysaskýrslu Umferðarstofu fyrir árið 2010 kemur fram að umtalsverð fækkun hefur orðið á slysum þar sem ölvaðir ökumenn koma við sögu. Fjöldi ölvaðra ökumanna sem valda slysum með meiðslum eða dauða voru 44 í fyrra en árið á undan voru þeir 51.

    Þegar slysatölur undanfarinna 10 ára eru skoðaðar þá kemur í ljós að meðalfjöldi ölvaðra ökumann sem valda slysum er tæplega 48. Það vekur athygli hve mikill fjöldi ökumanna olli slysum undir áhrifum áfengis árin 2007 og 2008 en fyrra árið voru þeir 57 en fjöldi þeirra náði síðan hámarki árið eftir en þá voru þeir 74. Síðan þá hefur þeim fækkað umtalsvert

    Meira
    09.06.2011
    Ný ESPAD rannsókn
    ESPAD2011afengi

    Verulega hefur dregið úr áfengisdrykkju ungmenna á síðustu árum. Um fjórðungur fimmtán til sextán ára barna hefur orðið drukkinn. Þetta kemur fram í niðurstöðum Evrópsku vímuefnarannsóknarinnar sem nær til fimmtán Evrópulanda og er framkvæmd á fjögurra ára fresti. Könnunin sýnir að stórlega hefur dregið úr áfengisneyslu fimmtán og sextán ára unglinga á Íslandi.

    Meira
    02.06.2011
    Húsfyllir á málþingi Bara gras? á Akureyri
    Akureyri11

    Málþing Bara gras? var haldið í Hofi á Akureyri fyrir skemmstu.  Mikill áhuga foreldra var fyrir þessu fræðsluþingi og fylltist minni salurinn (Hamrar) í Hofi svo stækka varð sætispláss og opna stæði útá gögnusvæði og má því reikna með að rúmlega 300 manns hafi sótt þingið. 

    Meira
    05.05.2011
    Náum áttum - morgunverðarfundur
    N8auglmai11smal

    Síðasti morgunverðarfundur Náum áttum - fræðsluhópsins, verður á Grand hótel miðvikudaginn 11. maí nk. og hefst kl. 08.15 með morgunverði.  Yfirskrift fundarins er „Eru hagsmunir barna hafðir að leiðarljósi við ákvarðanatöku í forsjár- og umgengnismálum“. 

    Meira
    06.04.2011
    Bara gras? fræðsla til foreldra
    Baragras_mynd

    Mánudaginn 4. apríl var hleypt af stokkunum fræðsluverkefninu Bara gras? sem er hluti af Verum vakandi, hvatningaátaki á meðal foreldra.  Á sama tíma var haldið fyrsta málþing Bara gras? í Rimaskóla í Reykjavík þar sem foreldrum er boðið að hlíða á fyrirlestra um skaðsemi kannabis

    Meira
    31.03.2011
    Foreldrar framhaldsskólanema hafa áhyggjur af drykkju og annarri neyslu

    Í fréttatilkynningu frá Heimili og skóla – landssamtaka foreldra segir að samtökin hafi fundað með foreldraráðsfulltrúum framhaldsskólanna, mánudaginn 15. febrúar 2011. Fundurinn hafi einkum verið ætlaður til að efla starf foreldraráða í framhaldsskólum sem er lögbundið fram að 18 ára aldri nemenda. Í fréttatilkynningunni segir að mikilvægt sé að foreldrasamstarf sé virkt í framhaldsskólum einkum nú þegar þjóðfélagið á í vök að verjast vegna fjármálaóvissu og niðurskurðar.

    Meira
    18.03.2011
    Vanlíðan barna, orsök, einkenni og úrræði

    Fræðslu- og forvarnahópurinn Náum áttum verður með morgunverðarfund á miðvikudaginn kemur, 23. mars kl. 08.15 - 10.00 á Grand hótel.  Að þessu sinni er fjallað um aðstæður barna sem verða fyrir ofbeldi, orsökum þess, afleiðingum og úrræðum sem í boði eru.

    Meira
    01.03.2011
    Ársþing 0% ályktar gegn lækkun áfengiskaupaaldurs
    0stjornin2011

    Laugardaginn 26. febrúar hélt 0% Landsþing sitt í Vinabæ.  0% eru samtök fyrir ungt fólk á aldrinum 14 - 30 ára sem valið hefur sér lífsstíl án áfengis og annarra vímuefna. 

    Meira
    14.01.2011
    Málþing IOGT: Bindindi, öfgar eða samfélagsleg ábyrgð

    IOGT á Íslandi boðar til málþings um forvarnamál í Norræna húsinu mánudaginn 24. janúar nk.  Á málþinginu verða fjögur erindi en yfirskrift þess er „IOGT, hugmyndin um bindindi, öfgar eða samfélagsleg ábyrgð“. 

    Meira
    25.11.2010
    Um 83% á móti lögleyfingu kannabisefna
    Kannabismynd

    Í könnun sem MMR-Markaðs- og miðlarannsóknir ehf gerðu dagana 3. – 5. nóvember  sögðust um 83% svarenda vera andvíg lögleiðingu á neyslu kannabisefna en um 17% sögðust því fylgjandi. Svarendur voru á aldrinum 18-67 ára og valdir handahófskennt úr þjóðskrá.

    Meira
    19.11.2010
    Áfengiskaup foreldra viðbót við aðra drykkju
    Áfengiskaup_foreldra

    Sú hugmynd að foreldrar geti komið í veg fyrir neikvæðar afleiðingar áfengisneyslu með því að kaupa áfengi fyrir börn sín á ekki við nein rök að styðjast. Þetta sagði Kjartan Ólafsson, lektor í félagsfræði við Háskólann á Akureyri á ráðstefnu um íslenskar æskulýðsrannsóknir sem haldið var 5. nóvember síðastliðinn. Þau ungmenni sem keypt er fyrir eru líklegri til að drekka meira og lenda í vandræðum.

    Meira
    19.11.2010
    Fíkniefnabrotum fjölgar
    Handjárn

    Fíkniefnabrotum sem komu til kasta lögreglunnar fjölgaði verulega í október miðað við sama mánuð í fyrra, samkvæmt afbrotatölfræði Ríkislögreglustjóra. Brotin í októbermánuði í ár voru 147, í fyrra 96 og 141 í október 2008.

    Meira
    11.11.2010
    Áhrif niðurskurðar á framhaldsskóla og brottfall
    N8nov2010_smamynd.jpg

    Náum áttum morgunverðarfundur 17. nóvember

    Fundurinn verður haldinn á Grand Hótel í Reykjavík, miðvikudaginn 17. nóvember kl. 8:15 - 10:00. Skráning nauðsynleg, fyrir kl. 17 þriðjudaginn 16. nóv. 
    Þátttökugjald er 1.500 kr., sem þarf að staðgreiða. Morgunhressing innifalin.

    Meira
    29.10.2010
    Vika 43 sett í Þjóðleikhúsinu
    VVV_2010_opnun_Tinna

    Vímuvarnavikan Vika 43 var formlega sett í gær í Þjóðleikhúsinu að viðstöddum nemendum frá Sjálandsskóla í Garðabæ, framáfólki í æskulýðs- og forvarnastarfi á Íslandi, lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins Stefáni Eiríkssyni og ráðherra dóms- og mannréttindamála, Ögmundi Jónassyni.  Þjóðleikhússtjóri, Tinna Gunnlaugsdóttir bauð gesti velkomna í leikhús þjóðarinnar og fagnaði þessu samstarfi leikhússins og Vímuvarnavikunnar en forvarnaleikritið Hvað ef? er nú sýnt í Kassanum og er ætlað efri bekkjum grunnskóla.  Nemendum er boðið á þessa sýningu í Kassanum í vetur en Vika 43 kostaði 10 fyrstu sýningarnar fyrir 1200 grunnskólanemendur í vímuvarnavikunni.  Hildur Helga Gísladóttir, framkvæmdastjóri Kvenfélagasambands Íslands opnaði síðan formlega Viku 43 með því að lesa upp áskorun sem undirrituð er af öllum 22 þátttökusamtökum í þessu árlega forvarnaverkefni.

    Eftir opnunina var öllum boðið á frumsýningu á Hvað ef? (www.hvadef.is) í Kassanum.
    Meira
    24.10.2010
    Vímuvarnavikan 2010 - Vika 43
    v43logo09net.jpg

    24. - 30. október

    Vika 43 er vettvangur félagasamtaka sem vilja leggja forvörnum lið og/eða hafa forvarnir að markmiði starfs síns, til þess að vekja athylgi á forvarnastarfi og áfengis- og vímuefnamálum:
    - Skapa vettvang fyrir samstarf félagasamtaka um að vekja athygli á stefnumörkun í áfengis- og vímuefnamálum, einkum forvörnum.
    - Varpa ljósi á viðfangsefni forvarna og það starf sem unnið er á vettvangi félagasamtaka.
    - Vekja athygli landsmanna á mikilvægi forvarna, einkum forvörnum gagnvart börnum og unglingum.
    - Virkja þekkingu, styrk og samstöðu grasrótarsamstarfs til eflingar forvarnastarfs.
     

    Meira
    05.10.2010
    Vilja banna áfengisauglýsingar
    Outi_Ojala_formaður_NordAN

    Fulltrúar á ársfundi NordAN sem haldin var í Kaupmannahöfn um síðustu helgi samþykktu ályktun, eða hvatningu til ríkisstjórna Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna um að banna áfengisauglýsingar.

    Meira
    17.09.2010
    Eineltisáætlun: Hvað svo?
    Naum_attum_sept_10

    Á fjölmennum fyrsta morgunverðarfundi Náum áttum hópsins á þessu hausti, sem haldinn var 15. september á Grand Hotel, var rætt um einelti. Yfirskrift fundarins var: Eineltisáætlanir, hvað svo? Guðjón Ólafsson fræðslustjóri og Þorlákur Helgi Helgason verkefnisstjóri Olweusarverkefnisins á Íslandi höfðu framsögu og svöruðu fyrirspurnum.

    Meira
    25.06.2010
    Verum vakandi - vakningaátak meðal foreldra um skaðsemi kannabis
    vakandihringlogo.jpg

    Átakið hefst á degi Sameinuðu þjóðanna gegn fíkniefnum – 26. júní 2010 en Sameinuðu þjóðirnar ákváðu í desember 1987 að tileinka 26. júní ár hvert alþjóðlegri baráttu gegn fíkniefnum (International Day against Drug Abuse and Illicit Trafficking) til þess að vekja athygli á fíkniefnavandanum og hvetja til samstarfs í fíkniefnamálum. Í tilefni þessa dags í ár mun Samstarfsráð um forvarnir (SAMFO) í samstarfi við nítján félagasamtök hefja sameiginlegt vakningarátak á meðal foreldra um skaðsemi kannabisefna undir heitinu „Verum vakandi“.

    Meira
    03.03.2010
    Skýrari reglur um áfengisauglýsingar
    smalsss.jpg

    Þingmenn Vinstri grænna, Ögmundur Jónasson og Þuríður Backman, hafa lagt fram frumvarp til laga um breytingu á áfengislögum. Þau segja í greinargerð með frumvarpinu að þrátt fyrir að auglýsingar á áfengi og einstökum áfengistegundum séu bannaðar hér á landi reyni framleiðendur og dreifingaraðilar áfengra drykkja að koma þeim á

    Meira
    18.02.2010
    Sala á áfengi sú minnsta síðan janúar 2006

    Langt er síðan svo lítil áfengissala hefur verið í einum mánuði og nú í janúar. Leita þarf allt aftur til janúar 2006 til að finna álíka raunveltu í sölu áfengis, en það ár var einum laugardegi færra í janúar en á þessu ári. Þetta kemur fram í nýrri

    Meira
    15.02.2010
    Áfengi skemmir frá fyrsta degi meðgöngu
    ungabarn2.jpg

    Áfengisneysla verðandi móður er skaðlegri fyrir fóstur í móðurkviði en neysla eiturlyfja. Þetta eru niðurstöður rannsóknar sem gerð var við háskólann í Bergen í Noregi. Í rannsókninni voru 130 börn og unglingar, 4-14 ára gömul, rannsökuð á árunum 1997-2007. Mæður þeirra misnotuðu áfengi, eiturlyf eða læknadóp á meðgöngu.

    Meira