FRÆÐSLA OG FORVARNIR

      

    konnunbann1
    Ég styð það að fíkniefnaleit með hundum fari fram í framhaldsskólum af og til í forvarnaskyni
    Mjög svo
    Talsvert
    Veit ekki
    Lítið
    Mjög lítið

    1_tbl_2011

    handbokin.jpg

    framhskol.jpg

    vika43logo11

    bida_bordi2.jpg

    ÉG ÆTLA AÐ BÍÐA...

    augl.jpg

     

    HLUTVERK FORVARNAFULLTRÚA
     
    Starfslýsing til viðmiðunar
     
    Er í forsvari fyrir stefnumörkun og framkvæmd forvarna í viðkomandi skóla 
     
    Stuðlar að því að forvarnir í víðtækum skilningi séu hluti af daglegu starfi skólans
     
    Hefur umsjón með reglulegri endurskoðun á skriflegri stefnu skólans í forvarnamálum
    Sér um kynningu á stefnu skólans í forvörnum fyrir starfsmenn skólans, nemendur, foreldra, bæjarfélagið o.fl.
     
    Sér um að fá fræðslu sem tengist forvörnum fyrir starfsmenn, nemendur og foreldra
     
    Er til viðtals fyrir nemendur og forráðamenn þeirra a.m.k. einu sinni í viku
     
    Stýrir vinnu forvarnateymis við skólann
     
    Vinnur að gerð upplýsingabanka sem settur er upp í skólanum.  Þar séu upplýsingar um úrræði fyrir nemendur í vanda, verkun vímugjafa, tómstundir og hvatning til ástundun jákvæðs lífsstíls
     
    Sér um að fá fagaðila á fræðslufundi fyrir kennara/kennslustjóra til að koma forvörnum inn í námsgreinar
     
    Vinnur að heilbrigðu og fjölbreyttu félagslífi með nemendum
     
    Vinnur að því að forvarnir séu hluti af dagskrá "opinna daga" í skólanum
     
    Styður starf jafningjafræðslunnar innan skólans
     
    Kynnir starf sitt a.m.k. einu sinni á ári á kennarafundi
     
    Aflar sé þekkingar og hugmynda hjá fagaðilum og með þátttöku á námskeiðum
     
    Er sem oftast gæsluaðili á skólaböllum
     
    Helstu samstarfsaðilar: námsráðgjafi, hjúkrunarfræðingur/læknir, félagslífsráðunautur, nemendafélagið, jafningjafræðslan, aðilar í bæjarfélaginu, ýmsir fagaðilar, aðrir forvarnafulltrúar o.fl.