|
Desember er mikill annatími hjá fjölskyldum. Neysla áfengis á tíma aðventunnar getur orðið ótæpileg þegar álag og kvíði verður fólki um megn, hjá sumum flóttaleið frá veruleikanum eða aukin neysla hjá þeim sem veikir eru fyrir vímunni. Hjá þessum einstaklingum eykur áfengisneysla aðeins á vansæld og erfiðleika. Gott er að muna að allir vilja upplifa vímulausa jólahátíð og öll börn eiga rétt á lífi án neikvæðra afleiðinga vímuefnaneyslu. Okkar er valið og víða má finna úrræði og ráðgjöf ef vanda ber að höndum vegna vímuefnasneyslu.
....................................
STUÐNINGSAÐILAR |
Ýmsar leiðir eru til að draga úr áhættu og áhyggjum sem fylgir áfengisneyslu um hátíðisdagana. Góðir gestgjafar vita t.a.m. að óáfengt er góður og sjálfsagður kostur þegar öll fjölskyldan sest að veisluborði um jól og áramót. |














